Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Myndavélakerfi

Myndeftirlit í rauntíma

Myndavélakerfi eru búin myndavélum til eftirlits fyrir skilgreind svæði sem senda síðan myndefni til myndþjóns til vistunar. Með nettengdum upptökubúnaði er á aðgengilegan og notendavænan hátt hægt að horfa á lifandi myndefni í rauntíma sem og að nálgast vistað efni.

Panta þjónusturáðgjöf
Myndavélakerfi

Margvíslegur ávinningur felst í öflugu myndavélakerfi:

  • aukið öryggi starfsmanna og viðskiptavina
  • aukin vernd eigna gegn skemmdarverkum og innbrotum
  • markvissari og skjótari viðbrögð við frávikum
  • minni rýrnun
  • upplýsingar um frávik, í rauntíma

Fjölbreyttir möguleikar myndavélakerfa

Myndavélakerfi fást í fjölmörgum útgáfum sem sniðin eru að þörfum notenda hverju sinni. Mikilvægt er að huga vel að vali á myndavélum og upptökubúnaði til þess að kerfið þjóni sem best tilgangi sínum.

Upptökubúnaður

Upptökubúnaður ráði við upptökur frá öflugum myndavélum sem í dag eru búnar margvíslegri tækni. Hann bjóði upp á alla helstu möguleika eins og upptöku við hreyfiskynjun, greiningar og fjartengingar. Viðmót sé notendavænt og auðvelt sé að taka út upptökur og efni.

Mögulegt sé að fjölga myndavélum með einföldum hætti í samræmi við auknar þarfir á eftirliti og vöktun svæða. Upptökupláss sé til staðar fyrir skilgreinda þörf á vistun myndefnis úr myndavélum og tímalengd hennar.

Kerfið bjóði upp á að hægt sé að fjartengjast því og hægt sé að skoða lifandi efni og upptökur í appi fyrir snjalltæki, eða öðrum hugbúnaði. Áreiðanleiki og uppitími skiptir máli og aðgengi að notendaaðstoð og þjónustu sé til staðar. Mikilvægt er að huga að netsamskiptum og tryggja öryggi í gagnaflutningi.

Öryggismiðstöðin býður fjölbreytt úrval myndþjóna og upptökuhugbúnað sem hentar við allar aðstæður.

Myndavélar

Myndavélar fást í miklu úrvali og eru valdar eftir fyrirfram skilgreindum þörfum hverju sinni.

Mikil þróun hefur verið undanfarin ár í gæðum og getu myndavéla. Úrval myndavéla er stöðugt að aukast og geta þeirra sömuleiðis. Hægt er að fá stýranlegar vélar, vélar með gervigreind, vélar með 180° sjónsviði, vélar með 360° sjónsviði, vélar sem gefa frá sér hljóð og ljósmerki við fyrirfram skilgreindar aðstæður og svo mætti lengi telja.

Til eru sérstakar myndavélar sem eru ætlaðar fyrir erfið skilyrði bæði innan og utan dyra.

Þjöppunarstaðlar eins og H.265 þjappa myndefni og takmarka þannig þörf á bandvídd og upptökuplássi í myndþjóni / upptökutæki.

Gervigreind (AI) hefur rutt sér rúms í myndavélaheiminum og er notuð í fjölbreyttum tilgangi við efnisleit, talningar og greiningar af ýmsum toga. Þannig geta myndavélarnar ekki eingöngu sent myndefni til upptökutækis, heldur greint atvik og brugðist við í rauntíma. Markmiðið er alltaf að minnka falsboð og auka skilvirkni auk þess að gera alla leit fljótlegri og skilvirkari.

Vöktun í rauntíma greinir fyrirfram skilgreind atvik

Rauntímavöktun í myndavélakerfum gefur kerfunum tækifæri á að líta eftir skilgreindum atriðum og atvikum sem gerast í sjónsviði myndavéla og senda aðvörun áfram til viðtakenda.

Dæmi um fyrirbæri og atvik sem eru vöktuð í rauntíma:

  • Fólk inni á skilgreindu svæði á skilgreindum tíma, t.d. eftir lokun
  • Þegar farið yfir línur sem skilgreina ákveðin svæði
  • Hópamyndun og hangs
  • Lestur bílnúmera
  • Brothljóð eða öskur

Við val á myndavélakerfi er að mörgu að huga. Fjölbreytt úrval lausna er í boði sem henta allt frá heimilum og minni fyrirtækjum til mjög stórra og umfangsmikilla lausna fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir.

Öryggismiðstöðin býður upp á sérhæfða ráðgjöf þar sem sérfræðingar veita ráð við val á búnaði og hönnun kerfis.

Myndband

Tengdar vörur

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Netverð 11.224 kr
Almennt verð 15.397 kr
Ekki til á lager

Björgvin Már Óttarsson

Öryggisráðgjafi Sala og ráðgjöf

Þengill Ólafsson

Viðskiptastjóri Sala og ráðgjöf

Pantaðu tíma hjá ráðgjafa

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um myndavélakerfi.