Sjúkrakallkerfi bæta þjónustu og stuðla að auknu öryggi íbúa og starfsfólks heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og þjónustukjarna. Hægt er að fá stakan búnað eða heildstæðara kerfi allt eftir þörfum og aðstæðum. Sjúkrakallkerfi er ætlað að auðvelda samskipti milli heimilisfólks og starfsfólks. Þau veita íbúum öryggistilfinningu að hægt sé að fá aðstoð með því að smella á hnapp. Einnig getur starfsfólk óskað eftir aðstoð sín á milli.
Intercall Touch er vírað sjúkrakallkerfi sem auðveldar samskipti milli íbúa og starfsfólks. Hentar allt frá minni íbúðarkjörnum yfir í stærri heilbrigðisstofnanir.
Ný kynslóð skynjara sem eykur öryggi með ópersónugreinanlegri vöktun. Betri nýting á fjármagni og mannauð ásamt því að veita betri þjónustu með virðingu fyrir skjólstæðingnum að leiðarljósi.
Emfit flogamotta er háþróuð motta til að greina alflogakramparköst (tonic-clonic seizures) hjá einstaklingum sem liggja í rúmi. Kerfið er byggt á næmri mottu sem er sett undir dýnuna og greinir stöðugar hreyfingar sem tengjast flogaköstum.