Okkar vöruframboð í heilbrigðislausnum er ætlað að gefa fagfólki tækifæri til að veita framúrskarandi þjónustu til notenda. Eiginleikar á þeim lausnum sem við bjóðum upp á er hannað með það í huga að auka framleiðni og gera starf heilbrigðisstarfsfólks auðveldara, öruggara og skilvirkara
Hágæða sjúkrarúm fyrir heilbrigðisstofnanir. Essenza 300 er með fimmta hjóli sem auðveldar keyrslu og stýringu á rúminu, innbyggðu næturljósi, framlengingu og notendavænum hliðargrindum sem hægt er að taka niður með einu handtaki. Fáanlegt í mismunandi útfærslum með fjölbreyttum aukahlutum til að mæta þörfum notenda. Eleganza 2 er eldri týpan af sjúkrarúmi fyrir heilbrigðisstofnanir og við sinnum ennþá þjónustu fyrir núverandi notendur.
Image 3 er rafknúið hjúkrunarrúm sem hefur bæði hlýlegt viðmót og virðir þær ströngu öryggis- og sótthreinsikröfur sem gerðar eru inn á heilbrigðisstofnunum. Hönnunin á hjúkrunarrúminu er tímalaus og hentar fyrir breiðan markhóp.
Latera Thema er rafknúið veltirúm sem léttir undir með heilbrigðisstarfsfólki sem þarf að snúa sjúklingnum. Veltirúmið hentar fyrir heilbrigðisstofnanir sem og notendur í heimahús. Veltirúmið er á samning við Sjúkratryggingar Íslands.
Við bjóðum upp á úrval af sáravarnadýnum og sérhæfðum loftdýnum frá traustum framleiðendum sem henta öllum stigum þrýstingssára.
Tom 2 er rafknúið sjúkrarúm sem er aðlagað fyrir börn. Hönnun Tom 2 barnarúmsins einkennist af hreinum línum, nútímalegum efnum og ferskum litum. Barnarúmið er á samning við Sjúkratryggingar Íslands.
Multicare X er ný kynslóð af gjörgæslurúmi sem er hannað fyrir langtíma legu á bráðasviði eða klíníska sárameðferð. Multicare X er ætlað að tryggja að hægt sé að meðhöndla sjúkling á öruggan hátt og án líkamlegri áreynslu
AVE 2 fæðingarúmið er bæði fallegt og skilvirkt sem gefur konum í fæðingu val um þægilegar stellingar. Rúmið hefur marga eiginleika sem gerir fæðingaferlið auðveldara fyrir bæði móður og heilbrigðisstarfsfólk.
Fjölnota aðgerðar- eða meðferðabekkur sem býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Pura meðferðarbekkurinn er hægt að nota allt frá eins dags skurðaðgerðir eða til blóðgjafar.
Bjóðum upp á úrval að fylgihlutum s.s. náttborð, matarborð, hliðarborð o.fl. frá Linet.