Molift Smart 150 er léttur segllyftari sem hægt er að leggja saman og tekur lítið geymslupláss. Seglhengið er fjögurra punkta hengi sem þýðir að það er stöðugra við flutning. Hægt er að fá ferðapoka á hjólum fyrir flutning á lyftaranum í lengri ferðalögum.
Með seglalyfturum er hægt að fá fjölbreytt úrval af flutningsseglum sem henta við mismunandi aðstæður. Öll flutningssegl eru til í mismunandi stærðum og útfærslum eftir færni og getu einstaklings.
Að auki bjóðum við upp á hreyfanlega seglalyftara sem taka allt að 300kg. Frekari upplýsingar um eftirfarandi lyftara má finna í PDF yfirlitsskjali: Fólkslyftarar frá Etac Molift 2023
- Molift Mover 180 (kg)
- Molift Mover 205 (kg)
- Molift Mover 300 (kg)
- Molift Partner 255 (kg)