Við í Öryggismiðstöðinni hjálpum þér að bæta lífsgæði með því veita faglega einstaklingsmiðaða þjónustu og hlusta á þarfir þínar. Við bjóðum vandaðar og margreyndar lausnir sem allar hafa það markmið að bæta lífsgæði og veita tækifæri til aukinnar þátttöku í samfélaginu.
Ekkert er dýrmætara en öryggi okkar nánustu. Öryggismiðstöðin býður öryggishnappa sem virka innan veggja heimilis. Ef alvarleg atvik eiga sér stað virkjar hnappurinn talsamband við sérþjálfaða öryggisverði sem bregðast skjótt við.
Gott aðgengi er réttur sem allir eiga að njóta. Við bjóðum fjölbreytt úrval af hágæðarömpum og brautum úr áli, sem eru léttir, einfaldir í notkun og með mikla burðargetu.
Við bjóðum upp á heildræna þjónustu í bílabreytingum fyrir alla aldurshópa. Ráðgjöfin er einstaklingsbundin og framkvæmd af fagaðilum með heilbrigðismenntun og umhyggju að leiðarljósi.
Við bjóðum fjölbreytt úrval vandaðra fólkslyftara sem bæta lífsgæði og tryggja vinnuvernd. Allt frá nettum ferðalyftara yfir í sundlaugalyftu, þú finnur lausnina hjá okkur
Tjáskiptabúnaður er ætlað að auka sjálfstæði, efla samskipta- og lestrahæfileika einstaklinga. Tjáskiptatæknin gefur einstaklingum tækifæri til að lifa innihaldsríkara lífi og auka þátttöku sína í samfélaginu.
Minnistækni gefur yfirsýn yfir daglega rútínu og hjálpar við tímastjórnun. Minnistækni stuðlar að áttun, rútínu og virkni ásamt því að styðja við sjálfstæði einstaklinga.
Við bjóðum upp á breitt úrval af Netti Comfort hægindahjólastólum frá norska fyrirtækinu Alu-Rehab sem hefur framleitt og þróað hjólastóla frá árinu 1989 í samvinnu við notendur og setráðgjafa.
Baldertech er rafknúinn hjólastóll sem er hægt að sérsníða að þínum þörfum. Við veitum heildræna og einstaklingsmiðaða ráðgjöf er varða setstöðu, stýribúnaðar og við að ferðast með hjólastólinn í bifreið.
Öryggismiðstöðin býður afar vandaðar, öruggar og þægilegar rafskutlur sem henta vel fyrir íslenskar aðstæður.
Bjóðum upp á öflugar heilbrigðislausnir sniðnar að þörfum heilbrigðisstarfsfólks sem eru ætlað að gera starf þeirra auðveldara, öruggara og skilvirkara
Heilbrigðistæknilausnir Öryggismiðstöðvarinnar nýtast frábærlega til að bæta líf einstaklinga með breytilegar þarfir.
Öryggismiðstöðin rekur öflugt verkstæði sem sinnir hvers kyns viðgerðum á hjálpartækjum sem seld eru af Öryggismiðstöðinni. Við erum einnig með samning við Sjúkratryggingar Íslands um viðgerðarþjónustu.
Sjúkrakallkerfi bæta þjónustu og stuðla að auknu öryggi íbúa og starfsfólks heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og þjónustukjarna.
GPS neyðarhnappurinn er hentug öryggislausn fyrir þá sem vilja tryggja aðstoð með einföldum og skjótum hætti. Með rauntíma GPS staðsetningu og öryggisvöktun er hnappurinn kjörinn fyrir fjölbreyttan hóp notenda.