Samkvæmt reglum Persónuverndar þarf notkun eftirlitsmyndavéla að hafa skýran og málefnalegan tilgang.
Upplýsa þurfi þá sem sæta vöktun og almennt má ekki varðveita efni sem verður til við rafræna vöktun lengur en 30 daga.
Á heimasíðu Persónuverndar má finna greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar sem snúa að meðferð og notkun eftirlitsmyndavéla þar sem helstu spurningum er svarað:
https://www.personuvernd.is/fyrirtaeki-og-stjornsysla/spurt-og-svarad/allar-spurningar-og-svor/eftirlitsmyndavelar
Einnig býður Persónuvernd upp á leiðbeiningar og sniðmát sem nýta má við fræðslu til starfsmanna og merkinga til upplýsinga:
https://www.personuvernd.is/fyrirtaeki-og-stjornsysla/fraedsluefni/leidbeiningar-personuverndar
Sniðmát fyrir fræðslu
Sniðmát fyrir merkingar - Dæmi 1
Sniðmát fyrir merkingar - Dæmi 2
Með öllum eftirlitsmyndavélum Öryggismiðstöðvarinnar fylgir merking um myndeftirlit/CCTV.
Sækja má sniðmát frá Öryggismiðstöðinni með upplýsingum um rafræna vöktun hér fyrir neðan:
Sniðmát
Aðrar ítarlegri merkingar skal gera eftir leiðbeiningum Persónuverndar.