Almennar fréttir
Haustfagnaður Öryggismiðstöðvarinnar
Haustfagnaður Öryggismiðstöðvarinnar var haldinn á dögunum í Borgarleikhúsinu.
Stórhljómsveit Fjallabræðra hélt uppi stuðinu ásamt Ragnhildi Gísladóttur, Sverri Bergmann, Lay Low, Jónasi Sig, Siggu Beinteins og Ladda. Boðið var upp á glæsilegar veitingar í föstu og fljótandi formi.
Þetta er var sérlega vel heppnað og gaman að kveðja sumarið og fagna komandi hausti og vetri með svona góðum viðburði fyrir viðskiptavini okkar, starfsfólk og velunnara. Við leggjum mikið í þetta og það er gaman að geta boðið til svona skemmtilegrar veislu, segir Auður Lilja Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs hjá Öryggismiðstöðinni.
Eins og sjá má á myndunum voru allir í skínandi góðu skapi!