Blogg
Eigið eldvarnaeftirlit
Öryggismiðstöðin býður eigendum og umráðamönnum fyrirtækja upp á þjónustu við eigið eldvarnaeftirlit.
Markmið eigin eldvarnaeftirlits er að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir í samræmi við gildandi lög um brunavarnir.
Eigið eldvarnaeftirlit felst í því að skoða með reglulegum hætti eftirtalda þætti;
- flóttaleiðir séu auðar og sýnilegar, vel merktar með útljósum og merkingum og starfsfólk þekki þær
- brunaviðvörun sé til staðar, í lagi og án athugasemda og bilana, brunahólfanir húsnæðis séu í lagi og í samræmi við samþykkta hönnun
- að til staðar séu viðeigandi slökkvibúnaður, hann sé rétt staðsettur, yfirfarinn og staðsetningar merktar með viðeigandi hætti
- að hættuleg efni, s.s. eldfim, sprengifim og/eða ætandi séu geymd í samræmi við brunahönnun húsnæðis á viðeigandi stöðum. Merkingar séu til staðar og þau séu ekki geymd með öðrum efnum sem geta valdið tjóni við óhöpp eða eldsvoða
- að viðbragðs- og rýmingaráætlanir séu til staðar, rýmingarfulltrúar séu skipaðir og starfsmenn fái reglulega kynningu á rýmingarleiðum og haldnar séu sérstakar rýmingaræfingar
Mismunandi þjónustuleiðir eru í boði sem eru sniðnar að þörfum fyrirtækja. Minni fyrirtækjum getur hentað að fá ráðgjöf og kennslu á meðan meðalstórum og stærri fyrirtækjum fer best á að sérmenntaðir fagaðilar sjái um eldvarnaeftirlit með reglulegum hætti og viðeigandi upplýsingagjöf til ábyrgðarmanna öryggismála.
Allar nánari upplýsingar veita ráðgjafar Öryggismiðstöðvarinnar.
Hlekkur á nánari upplýsingar um eigið eldvarnareftirlit.
Öryggismiðstöðin vinnur eftir lögum um brunavarnir, 75/2000 og reglugerð 723/2017 um eigið eldvarnaeftirlit eiganda og forráðamanna.