Þráðlaus staðsetningar- og neyðarhnappur frá Safemate. Hnappurinn notar GSM, GPS, Bluetooth og WiFi tækni til að senda nákvæma staðsetningu við neyðarboð. Hægt er að opna á tvíhliða talsamband. Hægt er að tengja hnappinn við stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar eða vera með eigin vöktun á boðum. Hentar fyrir fjölbreyttan hóp notenda.
GPS neyðarhnappurinn er hentug öryggislausn fyrir þá sem þurfa að kalla eftir aðstoð með einföldum og skjótum hætti. Með rauntíma GPS staðsetningu og öryggisvöktun er hnappurinn kjörinn fyrir fjölbreyttan hóp notenda, m.a. þá sem starfa einir eða í hættulegum aðstæðum.
Hægt er að tengja hnappinn við stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar sem tryggir vöktun og viðbragð allan sólarhringinn, alla daga ársins. Við neyðarboð getur stjórnstöð því fengið nákvæma staðsetningu á hnappinum, opnað á talsamband og brugðist við með viðeigandi hætti. Einnig er hægt að vera með eigin vöktun á hnappinum af starfsfólki þar sem boð berast í gegnum símtal, SMS eða tilkynningum í appi.
Viðskiptavinir okkar geta ávallt treyst á persónulega og faglega þjónustu Öryggismiðstöðvarinnar og við hjálpum þér að velja lausn sem hentar.
Leiðbeiningar fyrir GPS neyðarhnappinn
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um GPS neyðarhnapp.
Eða hringdu í síma
570 2400