Öryggismiðstöðin býður verslunarfyrirtækjum þjónustu við rýrnunareftirlit, þar sem sérhæfðir og þaulreyndir starfsmenn greina frávik í eftirlitsmyndavélakerfi viðskiptavina og fylgjast með kerfum í fjarvöktun.
Meðal kosta rýrnunareftirlits má nefna:
- sérsniðin þjónusta að þörfum hvers viðskiptavinar
- frávikagreining og fjarvöktun myndavélakerfis (í boði fyrir þá sem nota Milestone myndavélakerfi)
- úttektir á verslunum með tilliti öryggis og rýrnunar
- reglulegir fundir með verslunarstjórum um rýrnunarmál og þjálfun starfsfólks
- óvæntar heimsóknir þar sem fylgst er með á aðstæðum í rauntíma
Rýrnunareftirlit er sérsniðið að þörfum viðskiptavina hverju sinni með aðstoð sérfræðinga frá Öryggismiðstöðinni.