Öryggisnámskeið
Þjálfun gagnvart ógnandi hegðun
Öryggismiðstöðin hefur um langt skeið boðið viðskiptavinum sínum öryggisnámskeið fyrir starfsfólk í í afgreiðslu- og þjónustustörfum sem getur alltaf átt hættu á því að lenda í einstaklingum sem sýna ógnandi hegðun. Rétt viðbrögð í slíkum aðstæðum geta skipt öllu máli.
Á námskeiðinu er m.a. farið yfir: fjallað um varnir og viðbrögð við ógnandi hegðun, og hvernig æskilegt sé að bregðast við komi til atvika sem slíkra.
Meðal annars er farið yfir:
- varnir og viðbrögð við ógnandi hegðun einstaklinga
- hvernig æskilegt er að bregðast við ógnandi hegðun og ofbeldi af hálfu einstaklinga
- hverju æskilegt er að reyna að horfa eftir komi til ógnandi eða ofbeldisfulls atviks
- hvernig æskilegt er að svara ofbeldisfullum einstaklingi, bæði símleiðis og í eigin persónu
- hvað æskilegt er að gera eftir á til að veita lögreglu sem bestar og nákvæmastar upplýsingar um málsatvik
Farið er vel yfir líkamstjáningu og líkamsstöðu í dæmigerðu ofbeldisfullu atviki þannig fólk geti fengið smjörþefinn af því hvernig bregðast skuli við.
Kennarar á námskeiðinu hafa umfangsmikla reynslu af löggæslustörfum og margs konar öryggisstörfum.
Námskeiðið er um það bil einn og hálfur klukkutími.
Hámarksfjöldi 25 manns.
Þjálfun gegn rýrnun og þjófnaði
Námskeið um varnir gegn rýrnun og þjófnaði í verslunum eru einnig í boði en rýrnun er vaxandi vandamál í verslunum.
Á námskeiðinu er farið yfir forvarnir gegn þjófnaði, hverju er stolið, hverjir stela og af hverju. Einnig er farið yfir rétt viðbrögð er upp kemur rökstuddur grunur um þjófnað.
Fleiri námskeið
Einnig eru í boði námskeið um umgengni við öryggiskerfi , brunaviðvörunarkerfi, rýmingar, skyndihjálp og fleira.
Kennarar á öryggisnámskeiðum hafa umfangsmikla reynslu af löggæslu og fjölbreyttum öryggisstörfum.