Öryggismiðstöðin býður upp á námskeið í eldvörnum. Á námskeiðinu er farið yfir margvíslega þætti í tengslum við eldvarnir líkt og forvarnir, viðbrögð og beitingu handslökkvitækja.
Á námskeiðinu er farið yfir fyrstu viðbrögð við aðsteðjandi hættu og forgangsröðun aðgerða. Hvað auðveldlega er hægt að gera til þess að minnka líkur á eldsvoða og óhöppum.
Markmið námskeiðsins er að starfsfólk viti hvernig bregðast skuli við eldsvoða, hvernig hægt er að draga úr líkum á eldsvoða og kunni að beita handslökkvitækjum.
Verklegar æfingar geta líka verið hluti af námskeiðinu þar sem þátttakendur fá tækifæri til þess að æfa sig í notkun slökkvitækja.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um öryggisnámskeið.
Eða hringdu í síma
570 2400