Brunaviðvörunarkerfi
Brunaviðvörunarkerfi fyrir ábyrgan rekstur húsnæðis
Brunaviðvörunarkerfi eru órjúfanlegur hluti af ábyrgum rekstri húsnæðis. Þau eru samanstanda af stjórnstöð, sem tekur við boðum, gefur viðvaranir og vaktar skynjara, og öðrum búnaði sem tengdur er við kerfið.
Við stjórnstöð tengist fjölbreytt úrval skynjara sem henta aðstæðum:
- ljósnæmir (optískir) skynjarar er algengasta tegund reykskynjara
- hitaskynjarar eru notaðir þar sem hætta er á falsboðum vegna gufu eða ryks
- sambyggður hita- og optískur reykskynjari gefur síður falsboð en ljósnæmir og veitir betri vörn en hitaskynjarar
- línuskynjarar henta vel í stórum byggingum með mikla lofthæð
- hitastrengur er notaður þar sem er mikil hætta á falsboðum og jafnvel skemmdum á búnaði vegna óhreininda og raka
Tilgangur brunaviðvörunarkerfa er að skynja eld í byggingum, gefa frá sér viðvaranir og stýra lokunum á hurðum og loftræstingu til þess að bjarga mannslífum og lágmarka tjón.
Brunaviðvörunarkerfi eru fáanleg fyrir mismunandi tegundir húsnæðis:
- atvinnuhúsnæði
- iðnaðarhúsnæði
- gripahús
- frystiklefa og annað sérhæft húsnæði
Ofurnæm reyksogskerfi greina reyk og hita
Hægt að tengja reyksogskerfi við brunaviðvörunarkerfi. Þau hafa hafa þá eiginleika að geta með greint mikilli næmni minnsta reyk og yfirhita í viðkomandi rými.
Röralögn með götum á ákveðnu bili er lögð frá ofurnæmum skynjara um rýmið með áherslu að vakta viðkvæman búnað eins og tölvuskápa.
Reyksogskerfi eru hentug lausn fyrir rými sem hýsa viðkvæm gögn og starfsemi eins og skjalageymslur og tölvusali, þar sem nauðsynlegt er að bregðast skjótt við.
Vöktun allan sólarhringinn
Vaktmiðstöð Öryggismiðstöðvarinnar býður vöktun á stjórnstöð brunaviðvörunarkerfa en hún vaktar og bregst við boðum allan sólarhringinn. Vaktmiðstöðin er viðurkennd af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Sérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar veita ráðgjöf um val á réttum lausnum sem henta aðstæðum hverju sinni.
Reglur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um sjálfvirk brunaviðvörunarkerfi.