Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Göngu- og aksturshlið

Stýrðu aðgengi um þitt svæði

Aðgangsstýrð hlið gefa fyrirtækjum möguleika á að stýra aðgangi að tilteknum svæðum, innan eða utandyra. Við höfum lausnir fyrir meðal annars skrifstofuna, bílastæði og sumarhúsasvæði. 

Panta ráðgjöf
Göngu- og aksturshlið

Aðgangsstýrð hlið

Aðgangsstýrð hlið gefa fyrirtækjum möguleika á að stýra aðgangi að tilteknum svæðum, innan eða utandyra.

Með aðgangsstýrðum hliðum geta fyrirtæki til dæmis stýrt aðgangi viðskiptavina úr móttöku inn á starfsmannasvæði. Aðrar lausnir stýra aðgangi að bílastæðum og vörumóttökum með bómuhliði eða aksturshliði.

Þurfi umgengni að takmarkast við einn gest í einu eru fáanleg hlið eða slússur sem útiloka aðgang fyrir fleiri. Þau eru fáanleg í mismunandi útgáfum, hvort sem er fyrir notkun innandyra eða utan. Allt frá einföldum útgátum í slússur sem uppfylla hæstu öryggistaðla og kröfur.

Bómuhlið og önnur aksturshlið eru fáanleg í mörgum stærðum og gerðum. Bómur eru mismunandi langar eftir aðstæðum og opnunarmöguleikar eru með síma, fjarstýringu eða aðgangslesara. Bómuhlið geta tengst aðgangskerfum eða staðið sjálfstætt eftir óskum viðskiptavina hverju sinni.

Tryggðu öryggi við sumarhúsasvæðið

Vinsælt er að stýra aðgangi farartækja að sumarhúsasvæðum með bómuhliði og öryggissvæði eru víða tryggð með öflugri lausnum eins og rennihliðum.

Einnig eru notaðir stöplar sem koma upp úr jörðinni og varna því að óvelkomnir gestir aki inn á lokuð svæði eða utan opnunartíma.

Gönguhlið stýra aðgangi að völdum svæðum og hægt er að stýra þeim með aðgangskerfi og lesara sem veitir aðgang. Þá er umferð skráð í miðlægan hugbúnað og auðvelt að kalla fram skýrslur um notkun.

Öryggismiðstöðin er í samstarfi við Cardin, fyrirtæki með áratugareynslu í þróun og framleiðslu á sjálfvirknibúnaði fyrir hlið, hurðir og aðgangsstýrikerfi. Þeir bjóða upp á fjölbreyttar lausnir sem henta vel fyrir s.s. atvinnuhúsnæði og bílastæðaeigendur, með áherslu á gæði, áreiðanleika og nýsköpun. Einnig erum við í samstarfi við Alluser Industrie, annað fyrirtæki sem einnig er með áratugareynslu, sem sérhæfa sig í hönnun og framleiðslu á háöryggis sjálfvirkum inngöngum og hliðum. Þeir bjóða upp á sérsniðnar lausnir fyrir banka, stjórnsýslubyggingar og aðrar stofnanir sem krefjast hámarks öryggis.

Samstarf Öryggismiðstöðvarinnar við Cardin og Alluser hefur gert okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar upp á háþróaðar og öflugar aðgangslausnir sem uppfylla ströngustu öryggiskröfur með áreiðanleika að leiðarljósi. Með áherslu á gæði og nýsköpun hefur þetta samstarf bætt þjónustu við viðskiptavini.

Sérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar veita alla frekari ráðgjöf við val á lausnum.

Myndbönd

Tengdar vörur

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Slökkvitæki léttvatn 6 lítra

Netverð 14.736 kr
Almennt verð 17.337 kr
Ekki til á lager
Eldvarnapakki 1

Eldvarnapakki 1

Netverð 25.646 kr
Almennt verð 30.172 kr
Ekki til á lager
Optískur reykskynjari - stakur

Optískur reykskynjari - stakur

Netverð 2.098 kr
Almennt verð 2.468 kr
Ekki til á lager
Eldvarnarteppi 1,1x1,1 mtr.

Eldvarnarteppi 1,1x1,1 mtr.

Netverð 6.716 kr
Almennt verð 7.901 kr
Ekki til á lager

Sigurður Ari Gíslason

Viðskiptastjóri Öryggislausnir

Þengill Ólafsson

Viðskiptastjóri Öryggislausnir

Pantaðu tíma hjá ráðgjafa

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um göngu- og aksturshlið.