Bílastæðakerfi stýra aðgengi bifreiða um bílastæði. Þau byggja á greiningartækni þar sem myndavélar lesa bílnúmer og greina aðgangsheimildir með tengingu við gagnagrunn
Bílastæðakerfi stýra aðgengi bifreiða um bílastæði. Þau byggja á greiningartækni þar sem myndavélar lesa bílnúmer og greina aðgangsheimildir með tengingu við gagnagrunn.
Gagnagrunnurinn getur einnig verið tengdur við bifreiðaskrá og/eða greiðsluþjónustu gjaldtökufyrirtækja með snjallforriti.
Hægt er að setja upp sérstakar greiðsluvélar til móttöku á greiðslu fyrir afnot af bílastæði og getur hún einnig verið sjálfvirk þar sem myndavél greiðslukerfis þekkir bílnúmer sem viðskiptavin gjaldtökufyrirtækis.
Sé eingöngu verið að stýra aðgengi án greiðslu þá er hægt að skrá fyrirfram númer þeirra bifreiða sem eiga að hafa aðgang, hvort sem er að bílastæði, bílakjallara eða öðru skilgreindu umferðarsvæði.
Bílastæðakerfi eru til í margvíslegum útgáfum og veita sérfræðingar Öryggismiðstöðvarinnar alla frekari ráðgjöf við val á lausnum.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um bílastæðakerfi.
Eða hringdu í síma
570 2400