Aðgangskerfi gera notendum kleift að halda utan um aðgangsheimildir. Þau tryggja meðal annars rekjanleika aðgengis með aðgangsheimildum á aðgangskorti eða farsímaskilríkjum sem skilgreina heimildir til umgengni.
Aðgangskerfi gera notendum kleift að halda utan um aðgangsheimildir. Þau tryggja meðal annars rekjanleika aðgengis með aðgangsheimildum á aðgangskorti eða farsímaskilríkjum sem skilgreina heimildir til umgengni.
Öll umgengni er skráð í gagnagrunn og á einfaldan hátt er hægt að nálgast upplýsingar um notendur og umgengni á aðgengilegu skýrsluformi ef á þarf að halda.
Aðgangskerfi geta læst og aflæst rýmum á fyrirfram ákveðnum tímum, sem getur einnig verið misjafnt á milli daga ef þörf krefur.
Opnun hurða getur verið með aðgangskorti, farsíma, spjaldtölvu, appi eða í gegnum miðlægan hugbúnað stjórnenda kerfisins - allt eftir þínum hentugleika.
Sambyggð öryggis- og aðgangskerfi njóta mikilla vinsælda en þeim er hægt að stjórna miðlægt í notendavænum stjórnhugbúnaði í einu og sama viðmótinu.
Slík kerfi geta meðal annars
Öryggismiðstöðin hefur um árabil boðið upp á öryggis- og aðgangskerfi frá Inner Range, sem leitt hefur þróun á slíkum kerfum frá árinu 1999 og þykja lausnir þeirra notendavænar og áreiðanlegar. Mikill sveigjanleiki er í uppbyggingu kerfanna og leggur Inner Range mikla áherslu á þróun hugbúnaðarlausna í kringum kerfin. Fjöldi sérþjálfaðra sérfræðinga Öryggismiðstöðvarinnar sinna þjónustu við kerfin og hafa meðal annars unnið í náinni samvinnu með framleiðanda að þróun kerfisins með óskir og þarfir íslenskra notenda í huga. Frá upphafi hefur Öryggismiðstöðin verið stoltur samstarfsaðili Inner Range á Íslandi og þannig öðlast víðtæka þekkingu á kerfum þeirra.
Aðgangskerfi fást í mörgum útgáfum og sérfræðingar okkar veita ráðgjöf við val á hentugri lausn.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um aðgangskerfi.
Eða hringdu í síma
570 2400